Fótboltaveðmál voru ekki eins þróuð áður fyrr og buðu ekki upp á eins marga markaði eins og eru til staðar í dag. Í dag geta íslenskir veðjendur ekki einungis veðjað á sigurvegara leiksins eða jafntefli, heldur líka á skorara, forskot, stig í hálfleik, nákvæm stig, hornspyrnur og fleira. Í þessari grein munum við skoða veðmál á hornspyrnur, sem er eitt vinsælasta veðmálið á veðmálavefsíðum.
Hvað eru veðmál á hornspyrnur?
Vefsíður veðmangara leyfa þér að veðja á magn hornspyrna í tilteknum leik með því að nota yfir / undir möguleikann. Í öðrum orðum þá munt þú sjá töflu þar sem þú þarft að velja hvort það verða undir X margar hornspyrnur í leiknum, eða yfir X margar hornspyrnur í leiknum. Fyrir hvert verðgildi eiga ákveðnar líkur við. Þær eru reiknaðar út frá þínu veðmáli og ákvarðar þetta þína vinninga. Hér að neðan eru frekari upplýsingar um hornspyrnu-veðmáls markaði:
Magn hornspyrna – þetta er hefðbundnasta veðmálið, þar sem þú velur ‚yfir’ eða ‚undir’ ákveðið magn hornspyrna í leiknum;
Hornspyrnur fyrir hálfleik – enn og aftur spáir þú fyrir um magn hornspyrna, en einungis í fyrri hálfleik fótboltaleiksins;
Hornspyrnur hjá ákveðnu liði – þessi möguleiki gerir þér kleift að veðja á hvort liðið fái fleiri hornspyrnur. Líkurnar hér eru mjög góðar;
Fleiri hornspyrnur – þú velur hvort heimaliðið, gestaliðið eða bæði fái fleiri hornspyrnur;
Hverjar eru líkurnar í hornspyrnu-veðmálum?
Það er enginn vafi á því að líkurnar í þessum markaði séu háar, þannig að ef þú ert góður í því að spá fyrir um einstök atvik í leik, getur þú reynt á heppnina. Þar að auki gefa mismunandi möguleikarnir þér enn hærri líkur. Til dæmis, ef þú getur giskað um það bil það magn af hornspyrnum sem annað liðið mun fá, geta líkurnar þínar orðið mjög háar og, þar af leiðandi, unnið þér hærri vinninga.
Auðvitað getur þú sameinað hornspyrnu-veðmála markaðinn við aðra markaði sem standa til boða á veðmálavefsíðunni. Líkurnar munu hækka og vinningarnir munu vera mun hærri. Mundu hins vegar að það er hætta á tapi líka, þannig reyndu að spila með minni upphæðum til að byrja með til að sjá hvernig heppnin fer með þig.
Strategíur í hornspyrnu-veðmálum
Á þessum tímapunkti er engin 100% skilvirk strategía fyrir hornspyrnu-veðmál sem munu veita þér öruggan hagnað. Hins vegar getur þú íhugað örfáa möguleika sem munu auka þína möguleika á sigri í þessari tegund veðmála. Til dæmis er gott að skoða tölfræðina á leikjum milli ákveðinna liða, og skoða tíðni hornspyrna í leikjunum. Augljóslega er hver leikur mismunandi en að minnsta kosti munt þú hafa eitthvað til þess að miða við.
Önnur hugmynd sem við getum gefið þér er að kynnast taktík liðanna, og fylgjast með heima- og gestaþáttunum þar. Það má búast við því að sterk lið séu ágengari á sínum heimavelli og framherjar séu þá virkari. Þetta gefur það í skyn að þau fái fleiri hornspyrnur. Bara byggt á þessum upplýsingum getur þú gert veðmál um magn hornspyrna hjá hverju liði. Þú þarft að þekkja liðið og hvernig þau spila.
Þetta eru bara örfáar tillögur sem koma til greina. Það er mikilvægt að þekkja meistarakeppnirnar og mótin, hvernig liðin spila, áform dómaranna og aðra þætti. Með þessum hætti hefur þú hærri líkur á því að geta giskað á magn hornspyrna. Við vonum að þessi grein hafi verið hjálpleg og óskum þér góðs gengis í þínum veðmálum. Njóttu leiksins og veðjaðu skynsamlega.

